Hafðu alltaf á sjálfum þér trú, því það fæðist enginn eins og þú
Fréttasíður og fl....
Þínir flokkar
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
17.12.2008 17:37:34 / trubadorinn

Loksins

Já loksins ákvað ég að skrifa smá hérna inn, ég hef verið að brasa ýmislegt og þetta hefur aldeilis verið ágætur tími síðan ég bloggaði síðast.
Ég er td orðinn einkaþjálfari, útskriftin var síðasta laugardag, ég verð að segja það að ég kom eiginlega sjálfum mér mest á óvart því ég hélt að ég yrði í meiri erfiðleikum með lærdóm en annað kom svo aldeilis á daginn, mér gekk afskaplega vel og það er frábært að vera orðinn einkaþjálfari.

Ég er svo mjög sáttur með það hvernig mér gegnur að þjálfa 5 og 6 flokk hjá Val, ég fór td með 5 flokk í mitt fyrsta mór með þá og við unnum mótið sem var haldið í keflavík, allir voru auðvitað gríðarlega sáttir og maður fékk knús og kossa frá foreldrum þessara stráka, það var virkilega gaman að taka þátt í þessu og frábært að byrja svona...

Nú fer að líða að jólum og ég fer líka að eiga afmæli, það er miðvdagur í dag og það er akkurat vika í jólin, Aron Bjarki er svo að koma til mín um helgina, ég get ekki beðið eftir því að fá að sjá hann, það verður æðislegt að knúsa hann og kyssa, ég elska hann svo mikið þennan engil...

Ég verð að fara núna, það er að byrja æfing hjá 5 flokk eftir rúma klst, ég reyni að vera duglegri að blogga á næstunni, kv Hallur


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 12:21:18 / trubadorinn

Mikið að gera...

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér, það eru æfingar hjá Strákunum í Val á hverjum degi, svo er ég sjálfur að koma mér í form og svo er skóli á kvöldin, ég kvarta ekki, þetta er allt mjög spennandi og skemmtilegt, þannig að dagarnir fljúga áfram, sem er ágætt því þá líður tíminn hraðar og þá fer Aron að koma, ég er eiginlega bara að bíða eftir föstudeginum því þá kemur sá stutti, mikið verður það gaman :)  ég kíkti á hann í gær á leikskólann, vorum úti í kuldanum að leika okkur í hálftíma, ég varð bara að sjá hann og skrapp aðeins áður en ég byrjaði að þjálfa...

Ég hélt uppá afmælið hans síðustu helgina sem hann var hjá mér, það var roslega gaman og hann fékk fullt af fallegum gjöfum, hann er svo mikið krútt þessi elska, hann var svo ánægður með allt sem hann fékk, ég gaf honum td, íþróttagalla, takkaskó, gullfiska og búr undir þá :)

Liverpool eru búnir að vinna 5 leiki í röð, vonum bara að það haldi áfram :)
yfir og út, ég er farinn, bæ bæ.....








» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 11:12:37 / trubadorinn

Brjálað að gera

Það er allt að verða crazy í þessu landi, ég hugsa nú að margir hafi fengið smá fiðring í magann eftir ávarp forsætisráðherra, það er alveg ótrúlegt hvernig þetta hefur allt farið...
Nú er bara að vona að þetta fari að snúast til baka sem fyrst..

Ég er byrjaður í náminu, byrjaði í gær, ss einkaþjálfaranum, fyrsti dagurinn var bara fínn, þetta verður virkilega erfitt en ég ætla allavega að gera mitt besta, það er reyndar eitt slæmt því þetta rekst stundum á æfingar hjá mér með strákana í Val, en ég verð að sætta mig við það :(
Reyni bara að fá uppls frá félaga mínum honum Árna Páls þegar ég missi úr...

Maður er nánast enþá að jafna sig eftir leikinn á síðasta laugardag, Man City - Liverpool, 2-3 hahaha, City 2-0 yfir í hálfleik en mínir menn eru að sýna það að þeir eru svakalega sterkir og Torres er auðvitað alveg hrikalega góður, skoraði 2 mörk og átti síðan þátt í síðasta markinu, þegar að Kuyt skoraði, glæsilegur sigur sem verður að tileinka Martin Skrtel sem meiddist skömmu fyrir sigurmarkið, reif liðband í hnénu, ömurlegt að missa hann í meiðsli en þá fá aðrir menn séns eins og td Daniel Agger sem er frábær leikmaður...

Nú far að líða að helgi og ég get ekki beðið eftir Aroni mínum, vá hvað ég hlakka til að fá að knúsa hann, svo á hann afmæli á mánudaginn en ég ætla að halda uppá það á sunnudaginn..
Þá verður svaka gaman, ég var að spyrja hann um daginn hvað hann vildi í afmælisgjöf, hann svaraði: ég vil fótboltaskó eins og pabbi, hehe litli snillingurinn minn :)

Jæja ég er farinn, knús og kossar :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 12:30:27 / trubadorinn

Halló

Ástarbál

Sem heitur eldur um æðar mér rennur
ástarbál sem þú kveiktir í
ég finn það vel að hjarta mitt brennur
þó að þessi ást sé ný

Sterkir straumar mig færa í kaf
og snúa mér hring eftir hring
það er botnlaust mitt ástarhaf
og fegurð hér allt í kring

               Viðlag

Þú hefur augu sem lýsa upp nótt
með þér er allt svo kyrrt og rótt
þú hefur bros sem bræðir allt
með þér er mér aldrei kalt

Kaldir fingur en ást þín svo heit
kaldar tær sem kalla á yl
ástin er hrein það ég veit
hér ég dvelja vil


Ég samdi þetta fyrir nokkru síðan og var að finna þetta aftur, gaman gaman :)







» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 12:26:22 / trubadorinn

Veikur

Ég hata veikindi, ég náði mér í einhverja pest, sennilega af Ásgeiri bró, hann var veikur fyrir nokkrum dögum, þetta er svona hiti, hálsbólga, beinverkir og kvef, þvílika ógeðið, ég sem á að fara að spila í þrítugsafmæli annað kvöld, alveg dæmigert, hef ekki verið veikur geðveikt lengi og svo þegar eitthvað spennandi er að gerast þá kemur þetta ógeð....

Allavega þá er föstudagur í dag og ég bara nenni ekki að vera veikur um helgina, það er alveg glatað, ég veit ekki hvað ég á að gera ef ég missi af afmælinu hans Bangsa míns, en allavega þá er liverpool að spila við Stoke á morgun kl 14 og ætla ég mér að horfa á þann leik, auðvitað!!

Ekkert neitt að frétta annars, Æfingar hjá Val hafa verið í pásu þessa vikuna vegna þess að það má ekki vera á grasinu en gerfigrasið ætti að vera tilbúið um helgina og þá byrjar fjörið aftur og það er auðvitað bara gaman :)

Ég sakna Arons alveg svakalega, ég er bara í því að skoða myndbönd af okkur saman á kvöldin áður en ég fer að sofa, ég get ekki beðið eftir því að fá hann um næstu helgi...

Ég segi bara við ykkur góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr....


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 12:54:29 / trubadorinn

Ole ole ole

Liverpool 2 - Man utd 1,  þarf að ræða það eitthvað ?
Miklu betri í þessum leik og þetta var fyllilega verðskuldað, þetta var alveg frábært, svo eftir leikinn þá fór ég í brúðkaup þar sem ég var svaramaður, það var virkilega skemmtilegt verkefni að standa við hlið hans Frikka og ég get alveg lofað ykkur því að þetta var einn besti dagur í lífi mínu, það er ekkert smá sem maður getur verið stoltur af því að vera besti maðurinn eins og þetta heitir:)

Brúðkaupið var virkilega fallegt og það var td alveg magnað þegar presturinn sagði að þetta væri, bjartur dagur þar sem þau væru að gifta sig og líka afþví að Liverpool vann í morgun, hehehe...
Það var líka gaman að sjá öll þessi andlit sem maður hefur ekki séð lengi, þannig að þetta var bara alveg brilliant.
Aron Bjarki kom svo með mér í veisluna, fólkið hafði mjög gaman að því að sjá hann, enda er hann algjör gullmoli :)

Aron Bjarki var hjá mér um helgina og því var þessi helgi alveg tær snilld, ohh það er svo gott að hafa hann hjá sér þennan engil, ég sakna hans svo núna, ég vildi að hann væri hjá mér alla daga, það er svo langbest að hafa hann hjá sér, ég elska hann svo mikið....

Liverpool er að spila í kvöld í meistaradeildinni, ég held að það verði mjög erfiður leikur í frakklandi, ég ætla ekkert að vera með yfirlýsingar fyrir þann leik..
Vonum bara það besta....

En jæja ég er farinn, love you all, knús og kossar..
Kveðja Hallur sem er sáttur við síðustu daga :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 20:33:25 / trubadorinn

Mánudagur

Ég var að koma af æfingu rétt í þessu, í dag var ég með guttana hjá Val og svo skellti ég mér á æfingu með ÍH áðan í hávaða roki, það var nú ekki spennandi þar sem að menn voru ekkert að nenna þessu, ég reyndar nennti þessu alveg en hinir bara alls ekki og ég er samt eini sem er ekki að spila með þeim, hummm, furðulegt, maður á að leggja sig fram þó að veðrið sé ekkert spes..

Ég er að fara á landsleikinn á miðvukudaginn, Ísland- Skotland, ég horfði líka á leikinn gegn Norðmönnum, hann var bara nokkuð spennandi og ágætlega spilaður, vá hvað ég skil ekki hvað Norðmenn eru alltaf með einhverjar væntingar, þeir spila ógeðslega leiðinlegan bolta og bara geta ekkert, með nokkra hundleiðinlega leikmenn..
Ég held að við eigum alveg fínan séns í Skota, það hentar Íslendingum að spila gegn svona leikmönnum og svona spiluðum fótbolta, ég er nokkuð vissum að við vinnum þá, allavega jafntefli.

Frikki æskuvinur minn er svo að fara að gifta sig á laugardaginn, ég verð svaramaður hans í brúðkaupinu, það er skemmtilegt verkefni og mikill heiður, þetta verður bara gaman :)
Laugardagurinn er frekar stór dagur greinilega, Liverpool er víst að spila við Man Utd líka, en hann er spilaður í hádeginu og svo er brúðkaupið kl 17, þannig að ég ætti að ná að horfa á leikinn, annars vorum við að fíflast með það vinirnir að það væri fyndið ef að það væri farið að leita að okkur og við bara á barnum að glápa á leik :) 
Ég verð víst með einhvern söng og glens í brúðkaupinu líka, þannig að þetta verður bara gaman held ég, skulum allavega vona það .....

Shit hvað ég sakna Kristjáns Sveinssonar!!!
En jæja ég nenni þessu ekki lengur, bið að heilsa, bæ bæ...


ps. Aron Bjarki ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa þig á föstudaginn, i love you :*




» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 20:21:09 / trubadorinn

Góðan daginn

Ég var að koma heim, ég var að þjálfa strákana mína í Val áðan, það gekk auðvitað bara vel og mér líkar betur og betur við þetta allt saman, ég tel að ég geti kennt þeim margt í vetur og það verður gaman að vinna í því að bæta þá sem leikmenn, ungur nemur, gamall temur :)


Fyndið hvernig lífið getur verið, einn daginn hittir maður manneskju og það er eins og maður hafi þekkt hana alla ævi og þarf varla að spyrja hana spurninga, maður virðist vita allt hvort eð er...
Tinna Rut heitir þessi stelpa, það eru svona 2 vikur síðan ég kynntist henni og við höfuð eytt mörgum tímum saman og erum við alveg ótrúlega góðir vinir strax, sumt gerist bara án þess að maður biðji um það eða sé að leita....


Ég er búinn að vera edrú nánast allt þetta ár og ég verð bara að segja að ég sakna þess ekki að vera fullur og þunnur, það fer of mikil orka í þetta rugl, betra að vera allsgáður og hress, ég er líka bara ekki gerður fyrir drykkju, ég verð bara veikur, þannig að það er betra að vera bara edrú :)


Ég er í átaki, ég borða bara nammi á laugardögum og pizzu reyndar líka þann dag, þannig að það má segja að ég sé með einn svona sukk dag, það er ágætt og venst bara vel, ég er búinn að æfa alla daga vikunnar, 2 sinnum meira að segja á þriðjudaginn, svona á þetta að vera, enda finnur maður mun á hverjum degi andlega og líkamlega....
Stefnan er tekin á það að spila fótbolta næsta sumar :)

En jæja þetta er nóg í bili...
Bæ.





» 6 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 13:32:05 / trubadorinn

Ætla mér að fara að blogga hérna...............

Það er langt um liðið síðan ég hef verið með bloggsíðu og það voru einhverjar frekju raddir sem voru að biðja mig um að opna eina slíka síðu, fólk er greinilega eitthvað forvitið um kallinn :)
Það er kannski ekkert skrítið að fólk vilji frétta eitthvað af kallinum, það er þó aðalega fólk sem býr í burtu frá manni, auðvitað vill fólk fá fréttir, þannig er þetta bara..............................

En ég hef nú ekki mikinn tíma til að skrifa núna, ég ætla bara að segja ykkur að það er allt gott að frétta, ég er kominn í draumavinnuna, þeas, ég er að þjálfa krakka í fótbolta hjá Valsmönnum, ég fékk hringingu frá manni sem er yfir þarna hjá Val og hann bauð mér þetta starf því að hann hefur mikla trú á mér, tel ég það vera virkilega mikið hrós og jafnvel stökkpallur á eitthvað meira, það er líka svo gaman að getað deilt sínum hæfileikum til annara, sérstaklega til barnanna.....

Svo hef ég líka þær fréttir að færa að ég verða að trúbadorast í vetur, það er kominn tími á það, enda hef ég tekið mér pásu frá þessu í allt sumar og kem því sterkur inn í veturinn, ég var líka búinn að fá smá ógeð á þessu, en núna er mér farið að kítla í puttana, þá á maður að láta slag standa og koma sér í þetta aftur....

Þetta er fyrsta sumarið sem ég spila ekki fótboltaleik í íslandsmóti, ástæaðan er auðvitað bakið á mér, ég fór auðvitað í aðgerð í vetur og er enþá bara að jafna mig, ég er í engu formi og mér gengur ílla að komast á æfingar vegna vinnu og fl, ég var td að vinna mjög mikið í rútukeyrslunni í sumar og því var sjaldan tími til þess að æfa, enda er maður bara alltof þungur núna og því er lítið gaman að spila of þungur og í engu hlaupaformi....
Ég sé þó jafnvel breytingar á því fljótlega, ég ætti að getað æft þegar ég er búinn að þjálfa krakkana á daginn, ég vona að ég geti jafnvel æft vel í vetur og komið mér í ágætis form og spilað meiri fótbolta, því það er svo gaman og gefur mér svo mikið....

Ég átti frábæra helgi með Aroni Bjarka um síðustu helgi, við gerðum margt skemmtilegt, ég er auðvitað með barnalandssíðu fyrir þá sem vilja fylgjast með þar, þá er bara að senda mér mail á halli-trubador@hotmail.com og fá lykilorðið....

En jæja ég er rokinn út, bið að heilsa ykkur.......



» 6 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 13:00:54 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 5020